Þyrlan kölluð að skemmtiferðaskipi

Deila:

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar var kölluð út í morgun vegna bráðra veik­inda um borð í skemmti­ferðaskipi. Fram kemur á Facebooksíðu stofnunarinnar að þegar útkallið hafi borist hafi skipið verið um 50 sjómílur norður af Látrabjargi.

Fram kemur að vel hafi gengið að hífa manninn um borð í þyrluna en í kjölfarið hafi sjúklingurinn verið fluttur á Landspítalann í Fossvogi.

Myndirnar eru frá Landhelgisgæslunni.

Deila: