Úrvalshráefni úr Smugunni

Deila:

Beitir NK kom til Neskaupstaðar aðfaranótt miðvikudags með um 1.500 tonn af makríl sem fékkst í Smugunni. Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar. Um úrvalshráefni er að ræða að því er haft er eftir rekstrarstjóra fyrirtækisins. Lítil áta sé í fiskinum og það skipti miklu máli.

Makríllinn er að sögn heilfrystur.

Í fréttinni segir að Margrét EA komi til hafnar í kvöld með 1.250 tonn og í kjölfarið Vilhelm Þorsteinsson með 1.650 tonn. „Það er engin ástæða til annars en gera ráð fyrir að þessi skip færi okkur svipaðan gæðafisk til vinnslunnar og Beitir gerði. Nú er að styttast í lok makrílvertíðarinnar og menn eru farnir að ræða um norsk-íslenska síld, en hún er næst á dagskrá. Reyndar er Barði NK þegar byrjaður að svipast um eftir síld í þessum töluðu orðum,“ er haft eftir Geir Sigurpáli Hlöðvers­syni, rekstr­ar­stjóri fiskiðju­vers Síld­ar­vinnsl­unn­ar.

Deila: