Ágæt veiði hjá ísfisktogurunum

Deila:

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir gær, Bergur í Grindavík en Vestmannaey í Vestmannaeyjum. Á vef Síldarvinnslunnar er rætt við skipstjóra skipanna. Jón Valgeirsson á Bergi segir að túrinn hafi verið stuttur. Vel hafi gengið að fiska. „Við fórum út á sunnudag og áttum að taka karfa í túrnum. Haldið var í Skerjadýpið og þar gekk vel að fiska. Það var ágætis nudd þarna. Við vorum svo kallaðir inn og komum til Grindavíkur í gærkvöldi með um 40 tonn. Aflinn fékkst í fimm holum og er hann mest djúpkarfi og síðan dálítið af gullkarfa. Það verður landað í dag og við höldum á ný til veiða í kvöld,“ er haft eftir honum.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir að veiðar hafi gengið ágætlega. „Aflinn hjá okkur er mest þorskur og ýsa og við erum með fullt skip. Það var farinn hefðbundinn veiðirúntur, byrjað á Pétursey og Vík og síðan veitt á Ingólfshöfða, í Sláturhúsinu og á Mýragrunni. Það er heldur farið að hægja á ýsuveiðinni eins og oft gerist þegar hausta tekur en þorskveiðin var bara góð. Við förum á ný til veiða á morgun en það fækkar óðum túrunum á þessu kvótaári,“ er haft eftir Birgi Þór.

Deila: