Barði tekur stefnuna á Rósagarðinn

Deila:

Barði NK, skip Síldarvinnslunnar er á leið á kolmunaveiðar. Á vef fyrirtækisins er rætt við skipstjórann Þorkel Pétursson, sem ber að stefnan verði tekin á Rósagarðinn. Þar hafi frést af fiski. „Síðustu ár hafa skip veitt vel í Rósagarðinum um þetta leyti árs og veiðin hefur staðið yfir í nokkrar vikur. Ég hef frétt af fleiri skipum sem eru að hefja veiðar þarna. Þetta verður bara spennandi og menn eru bjartsýnir. Það er alltaf gott að sækja kolmunnann á þessi mið því hann er einnig veiddur miklu fjær landinu eins og menn vita,“ segir Þorkell.

Í fréttinni er einnig rætt við Hafþór Eiríksson, rekstrarstjóra fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar. Hann segir að fyrsta löndun á kolmuna úr Rósagarðinum hafi verið 27. september í fyrra. Þá hafi Barði komið með 760 tonn til Neskaupstaðar. „Það var fínasta veiði í október í fyrra og þannig hefur það verið síðustu ár. Á þessum árstíma er fiskurinn feitur og býsna gott hráefni til vinnslu. Hann er til dæmis mun feitari en hann var í vor. Ég geri ráð fyrir að kolmunna verði landað í verksmiðjur Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Menn verða klárir að taka á móti hráefninu,“ segir Hafþór.

Deila: