Bjarni Sæmundsson strandaði við Tálknafjörð

Deila:

Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson strandaði á Sveinseyri í Tálknafirði seint í gærkvöld. Tilkynning um strandið barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um klukkan 21:12 að því er fram kemur á vef gæslunnar. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út sem og björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar auk annarra skipa. Tuttugu voru um borð í skipinu þegar það strandaði. Til að gæta fyllsta öryggis var ákveðið að fækka farþegum um borð og því voru átta farþegar fluttir frá borði.

„Þyrla Landhelgisgæslunnar var höfð í viðbragðsstöðu á Tálknafirði en hæglætisveður var á strandstað og aðstæður góðar. Skipið komst á flot á flóði klukkan 23:26 í kvöld með hjálp björgunarskipsins Varðar auk fiskieldisskipanna Fosnafjord og Fosnakongen og sigldi undir eigin vélarafli að bryggju á Tálknafirði. Rannsókn á tildrögum strandsins er í höndum RNSA.”

Deila: