Gullver heldur til veiða

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom nýlega til heimahafnar á Seyðisfirði eftir að hafa verið í slipp á Akureyri um tíma. Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar. Gert er ráð fyrir að skipið haldi til veiða síðdegis í dag, fimmtudag.

Rætt er við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra. „Við reiknum með að fara út seinni partinn. Það þarf að ná í fisk fyrir vinnsluna og því verður þetta afar stuttur túr. Áformað er að við komum inn á mánudagsmorgun. Við förum líklega út á Gletting. Það má gera ráð fyrir að þar liggi fiskurinn í síldinni,“ segir hann.

Fram kemur að rýmingu hafi verið aflétt á Seyðisfirði í gær en vegna brælunnar að undanförnu fáist ekki fiskur til vinnslu í frystihúsinu fyrr en Gullver landi á mánudag.

Deila: