Veruleg lækkun kvóta í norsk-íslenskri síld

Deila:

Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) leggur til að afli í norsk-íslenskri síld verði 390 þúsund tonn á næsta ári. Í ár var ráðgjöfin 511 þúsund tonn en útlit fyrir að veidd hafi verið um 693 þúsund tonn – eða 35% umfram ráðgjöf. Um er að ræða 24% lækkun í ráðgjöf á milli ára.

„Ástæður þessarar lækkunar er bæði léleg nýliðun og stærð stofnsins mun fara undir aðgerðamörk nýtingarstefnunnar sem þýðir ráðgjöf með lægri veiðidánartölu. Gert er ráð fyrir að árgangurinn frá árinu 2016 verði uppistaðan í veiði næsta árs en árgangar þar á eftir eru metnir slakir,” segir á vef Hafró.

Fram kemur að ekkert samkomulag sé í gildi samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum um skiptingu aflahlutdeildar og hver þjóð því sett sér aflamark einhliða. Það hefur haft þær afleiðingar að frá árinu 2013 hafa veiðar umfram ráðgjöf ICES numið 4-42 % á ári.

ICES leggur til að nýting á makríl verði ekki meiri en 739 þúsund tonn, semer 5% hækkun frá núverandi ráðgjöf. Hefur hver þjóð sett sér einhliða aflamark í makríl sem hefur haft þær afleiðingar að veiðar hafa verið umfram ráðgjöf ICES. Frá árinu 2010 hafa veiðar umfram ráðgjöf ICES numið 9-86 % á ári og að meðaltali 40%.

Sömu sögu er að segja um kolmuna en þar er lögð til 13% hækkun á milli ára. Áætlað er að veiðar á kolmuna verði 23% umfram ráðgjöf á þessu ári.

Sjá nánar hér.

Deila: