Skutu 24 hvali á vertíðinni

Deila:

Hvalveiðivertíð Hvals hf. er lokið. Skipin veiddu samtals 24 langreyðar í septembermánuði. Veiðar hófust í septemberbyrjun, eftir að tímabundnu banni Svandísar Svavarsdóttur við hvalveiðum lauk. Mótmæli settu þó mark sitt á upphaf veiðanna, sem töfðust þeirra vegna.

Vertíðin stóð aðeins yfir í 24 daga en eins og áður segir komu jafn mörg dýr á land. Í fyrra voru 148 hvalir veiddir, þar af 38 í september.

 

Deila: