35 þúsund tonn á land í júní

Deila:

Landaður afli í júní var um 35 þúsund tonn sem er nokkuð álíka og í júní 2022. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Þorskafli var að sögn rúmlega 15 þúsund tonn, 2% minna en í fyrra, en botnfiskafli dróst annars saman um 5%. Uppsjávarafli var tæplega 2.000 tonn þar sem aðaluppistaðan var makríll.

Heildarafli á 12 mánaða tímabilinu júlí 2022 til júní 2023 var 1.346 þúsund tonn sem er 157 þúsund tonnum minna en landað var á sama 12 mánaða tímabili þar á undan.

Fram kemur að um bráðabirgðatölur sé að ræða, tölur sem byggja á upplýsingum frá Fiskistofu.

Deila: