Stellurnar afhjúpaðar við hátíðlega athöfn

Deila:

Líkan af systurskipunum Sléttbak EA 304 og Svalbak EA 302 var afhjúpað og afhent við hátíðlega athöfn í matsal Útgerðarélags Akureyringa, miðvikudaginn 1.nóvember, nákvæmlega hálfri öld eftir að þessi glæsilegu skip komu í fyrsta sinn til Akureyrar. Þetta kemur fram á vef Samherja. 

Þar segir að að smíði líkamsins standi hópur sem kalli sig Stellurnar. Það sé áhugahópur um varðveislu og sögu togara ÚA. Líkamnið smíðaði Elvar Þór Antonsson á Dalvík.

Fram kemur að fjölnmenni hafi sótt hátíðina í ÚA-salnum, þar á meðal sjómenn sem voru á skipunum en einnig færeyskt áhugafólk um Stellurnar.

„Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja bauð gesti velkomna og þakkaði Stellunum fyrir frumkvæði að smíði glæsilegs og vandaðs líkans. Mikilvægt væri að varðveita og skrásetja sögu útgerðar á Akureyri, svo sem skipa.

Sigfús Ólafur Helgason safnstjóri Iðnaðarsafnsins á Akureyri er hvatamaður að verkefninu. Hann segir að sú hugmynd hafi kviknað sl. vetur að setja á laggirnar söfnun til að standa straum af kostnaði við að smíða líkan af skipununum. Tímasetningin á afhjúpun líkansins hafi verið einstaklega ánægjuleg og táknræn,” segir í fréttinni.

Deila: