Fallegar síldartorfur vestur af Malarrifi

Deila:

Börkur NK kom til Neskaupstaðar aðfaranótt laugardags með 1244 tonn af síld sem fékkst vestur af landinu. Vinnslu aflans lauk aðfaranótt mánudags og segir Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar, að síldin hafi verið mjög góð og hentað í alla staði vel til vinnslu. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

Þar segir einnig að Beitir hafi komið til Neskaupstaðar síðdegis á mánudag með 1370 tonn af síld.

Haft er eftir skipstjóranum Tómasi Kárasyni að þeir hafi verið að veiðum 80 sjómílum vestur af Malarrifi. „Við vorum þrjá daga á veiðum og þetta fór rólega af stað. Síðan leituðum við og fundum stórar og fallegar torfur þarna utan við kantinn og þá fór að ganga betur. Aflann fengum við í fimm holum og í síðasta holinu voru tæp 500 tonn. Þetta er sama góða síldin og verið hefur þannig að við höfum ekki yfir neinu að kvarta,“ er haft eftir Tómasi.

Deila: