Þorskurinn vant við látinn

Deila:

,,Það er lokun við suðurströndina vegna hrygningar þorsksins og ég ákvað því að reyna fyrir mér á Vestfjarðamiðum. Það reyndist vera fýluferð og þorskurinn er eitthvað vant við látinn þessa dagana,“ segir Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Akurey AK, í samtali á heimasíðu HB Granda í gær. Hann reiknar með því að skipið komi til hafnar í Reykjavík um hádegisbil í dag.
,,Við hófum veiðiferðina á Fjöllunum og þar var að vanda nóg af gullkarfa og við fengum einnig dágóðan ufsaafla. Síðan fórum við á Eldeyjarbankann en þar var lítið að hafa. Minnugir þess að þorskaflinn hafði alveg dottið niður djúpt á Selvogsgrunni, eða fyrir utan 12 mílurnar, þá ákvað ég að prófa Vestfjarðamiðin. Það skilaði ekki neinum árangri og ég býst við að taka eitt til tvö hol úti af Snæfellsjökli á heimleiðinni,“ segir Eiríkur en er rætt var við hann var aflinn í veiðiferðinni um 100 tonn.
Þorskveiði virðist almennt ganga illa á togaraslóð þessa dagana. Helga María AK og Engey RE voru búnar að reyna fyrir sér á Vestfjarðamiðum áður en Akurey fór þangað en með takmörkuðum árangri. Að sögn Eiríks Jónssonar berast svo þær fréttir að lítið sé um þorsk í afla togara fyrir austan.

Deila: