Rúm fimm hundruð tonn unnin í síðustu viku

Deila:

294 tonn fóru í gegn um frystihús Vísis hf. í Grindavík í síðustu viku og 233 tonn í gegn um salthúsið. Samtals voru 527 tonn af fiski unnin hjá félaginu. Um er að ræða þriðju stærstu viku ársins. Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar, en Vísir tilheyrir samstæðunni. Haft er eftir Andrési Óskarssyni, sem annast aflastýringu hjá Vísi að mest hafi verið unnin 535 tonn í vinnslum félagsins eina vikuna í febrúar.

Hann segir að vinnslan gangi vel og að aflabrögð séu góð. „Við erum að fá nóg af fiski til vinnslu og fiskurinn er mjög góður. Í síðustu viku var tekið á móti afla frá Fjölni, Sighvati, Páli Jónssyni og Jóhönnu Gísladóttur og einnig frá línubátunum Sævík og Daða. Þetta eru skip Vísis en að auki kom afli frá Vestmannaeyjatogurunum Bergi og Vestmannaey. Tíðin í síðustu viku var góð og öll skip voru með fullfermi.”

Fram kemur að þetta sé eins gott og það geti verið en fínasta fiskerí hafi verið í allt haust. „Í október var afli okkar skipa 2.115 tonn og í síðustu viku var heildarafli skipanna yfir 100 tonn alla daga. Þá hafa skipin fært góðan fisk að landi sem hentar vel fyrir vinnslurnar. Meðalþyngd þorsksins er um þrjú kíló og ýsunnar rúm tvö kíló. Það gerist ekki mikið betra. Hér liggur bara vel á mönnum og allt gengur vel þrátt fyrir að jörð hristist,” segir Andrés.

Deila: