Margrét máluð í Danaveldi

Deila:

Unnið er að því að mála Margréti EA 710 í litum Samherja. Skipið hefur verið í slipp í Skagen í Danmörku þar sem unnið hefur verið að endurbótum auk lögbundinna skoðana. Þetta kemur fram á vef Samherja.

Skipið bættist í flota félagsins í mars á þessu ári en það hét áður Christina S. Skipið var smíðað í Noregi 2008. Haft er eftir Hirti Valssyni skipstjóra að Margrét fari fljótlega til veiða. „Vinnunni hérna í Skagen fer senn að ljúka, þannig að það styttist í veiðiferð hjá okkur. Það er bara frábært að búið sé að mála skipið í litum Samherja, það var reyndar með rauðan skrokk en persónulegra finnst mér þessi dökkrauði litur Samherja fallegri. Ljósi liturinn tónar líka einstaklega vel við dökkrauða litinn.”

Fram kemur að skipið sé gott og vel fari um mannskapinn. Allur aðbúnaður sé til fyrirmyndar, tækjabúnaður góður og vélin kraftmikil. Greinilegt sé að fyrri eigendur hafi hugsað vel um skipið.

Deila: