Seðlabankinn beðið afhroð
„Með dómi Hæstaréttar Íslands í dag lauk máli Seðlabanka Íslands á hendur Samherja. Með þessum dómi lýkur endanlega tæplega sjö ára aðför Seðlabankans á hendur Samherja. Öllum fullyrðingum og ásökunum Seðlabankans á hendur Samherja og starfsfólki okkar hefur verið hnekkt og bankinn beðið afhroð,“ segja æðstu stjórnendur Samherja hf. í yfirlýsingu sem birt er á heimasíðu félagsins.
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Seðlabankanum hafi ekki verið heimild að leggja stjórnvaldssekt á Samherja. Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans taldi Samherja hafa brotið gjaldeyrislög og gerði húsleit hjá fyrirtækinu árið 2012. Málið snérist meðal annars um verðlagningu á karfa og útflutning á honum. Seðlabankinn sendi tvívegis kæru til Sérstaks saksóknara, sem endursendi þær, áður en bankinn ákvað að sekta Samherja. Samherji kærði sektarákvörðunina og bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Hæstiréttur komust að þeirri niðurstöðu stjórnvaldssektin hafi verið ólögmæt.
Þakklæti til starfsmanna
„Okkur er efst í huga þakklæti til ykkar kæru starfsmenn. Þið sem hafið staðið þétt við bakið á okkur í gegn um árin. Það er þungbært að sitja undir ásökunum jafn valdamikillar stofnunar og Seðlabanka Íslands. Með slíkum þunga getur verið auðvelt að brjóta niður samstöðu fólks. Takk kæru starfsmenn fyrir stuðninginn og alla vinnuna sem þið hafið lagt á ykkur. Við viljum líka þakka fyrir að þið misstuð aldrei trúna á okkur og að við höfum lagt okkur fram um að vinna störf okkar í samræmi við lög og reglur. Við unnum ásamt ykkur heiðarlega og samviskusamlega að rekstri okkar fyrirtækis á tímum sem eiga sér ekki hliðstæðu á Íslandi. Samstaða ykkar hjálpar okkur að halda áfram þegar að okkur er sótt,“ segja þeir Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson.