Fiskvinnsla stöðvast í Grindavík

Deila:

„Staða mála hefur ekki áhrif á starfsemi útgerðar en fiskvinnsla í Grindavík hefur stöðvast. Stjórnendur vinna við að bregðast við aðstæðum og munu taka ákvarðanir í samræmi við þróun mála.”

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í tilkynningu Síldarvinnslunnar til Kauphallarinnar. Grindavíkurbær hefur verið rýmdur vegna jarðhræringa sem leitt geta til eldgoss í bænum. Vísir ehf., dótturfélag Síldarvinnslunnar, er með starfsemi sína í Grindavík. Félagi ðhefur unnið að því að undirbúa og innleiða varnir og áætlanir ti lsamræmis við þær sviðsmyndir sem almannavarnir og jarðvísindamenn hafa sett fram, að því er fram kemur í tilkynningunni.

„Vörðuðu þær flestar áhrif tjóns á innviðum utan Grindavíkur, s.s. á raforkuver og hitaveitu. Ljóst er að þróunin undanfarna sólarhringa hefur verið önnur og verri gagnvart byggð í Grindavík en þær sviðsmyndir gerðu ráð fyrir.

Stjórnendur hafa yfirfarið stöðu félagsins út frá vátryggingarvernd og telja fasteignir og lausafé félagsins í Grindavík vera vel tryggt í samræmi við lög vegna hugsanlegs tjóns af völdum jarðhræringanna. Starfsmenn og stjórnendur vinna að því að verja verðmæti sem bundin eru í hráefnis- og afurðabirgðum í samráði og samvinnu við yfirvöld.

Stjórnendur leggja áherslu á að hlúa að starfsfólki og halda sambandi við það.”

Undir yfirlýsinguna ritar Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar hf.

 

Deila: