Umsóknir úr matvælasjóði

Deila:

Matvælasjóður opnar fyrir umsóknir 1. febrúar 2024 vegna fjórðu úthlutunar sjóðsins.Umsóknarfrestur er til miðnættis 28. febrúar 2024. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að hlutverk sjóðsins sé að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu.

„Sem fyrr leggur sjóðurinn áherslu á þróun og nýsköpun í innlendri matvælaframleiðslu“ segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. „Við viljum að íslensk matvælaframleiðsla jafnist að gæðum á við það sem best gerist á heimsvísu og á þeirri vegferð eru vegvísar okkar hringrásarkerfið, sjálfbærni og fæðuöryggi“.

Sjóðurinn veitir styrki í fjórum flokkum:

  • Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi og fleytir hugmynd yfir í verkefni.
  • Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu.
  • Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi og leiða af sér afurð, sem er þó ekki tilbúin til markaðssetningar
  • Fjársjóður styrkir sókn á markaði og hjálpar fyrirtækjum að koma sínum verðmætum á framfæri.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér flokkana og handbókina vel áður en farið er í að vinna umsókn. Uppfærð handbók verður aðgengileg á heimasíðu sjóðsins þegar nær dregur.

Einungis verður tekið við umsóknum í gegnum Afurð sem er stafrænt stjórnsýslukerfi matvælaráðuneytisins.

Deila: