Mok á kolmunaveiðum

Deila:

Beitir NK kom til Seyðisfjarðar fyrir helgi með 2.950 tonn af kolmunna. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er sagt frá þessu en þar er rætt við Tómas Kárason skipstjóra.„Þetta var í sannleika sagt rosaleg veiði, algjört mok. Við fengum aflann á gráa svæðinu suðvestur af Færeyjum og það var aldrei dregið nema í 8 – 12 tíma. Þetta voru sex hol. Við fengum tvö 600 tonna hol, tvö 500 tonna, eitt var 390 tonn og eitt 360. Það var mikið að sjá af fiski á stóru svæði og þetta er hinn fallegasti fiskur, ábyggilega gott hráefni fyrir verksmiðjuna. Þar með er kolmunnaævintýrinu lokið að sinni en við gerum allt eins ráð fyrir að halda til kolmunnaveiða á ný eftir áramót. Svo bíða auðvitað allir spenntir eftir niðurstöðu frekari loðnuleitar,“ er haft eftir Tómasi.

Fram kemur að vinnslan á Seyðisfirði hafi fengið yfir 7 þúsund tonn af kolmuna til vinnslu síðustu daga. „Vilhelm Þorsteinsson EA kom fyrstur með um 2.500 tonn, síðan kom Barði NK með rúmlega 2.100 tonn og nú Beitir með 2.950 tonn.”

Deila: