Gullver greip í tómt á ufsaveiðum

Deila:

Ufsaveiðar gengu treglega hjá frystitogaranum Gullveri NS, sem landaði á Seyðisfirði í vikunni. Skipið landaði 84 tonnum af þorski, 13 tonnum af ýsu en aðeins 3,5 tonnum af ufsa. Fram kemur í máli Hjálmars Ólafs Bjarnasonar skipstjóra að túrinn hafi verið langur, eða um vika. Gerð hafi verið heiðarleg tilraun til að finna ufsa en sannarlega hafi verið fátt um fína drætt í þeim efnum.

„Ufsinn er okkur afar erfiður. Við reyndum einnig að finna karfa með litlum árangri. Við byrjuðum á að fara suður í Hornafjarðardýpi og síðan var reynt á nánast hverri bleiðu norður á Tangaflak. Við tókum aflann að mestu á Gula teppinu og það gekk vel að veiða ýsuna yfir daginn en hún veiðist lítt eða ekki í myrkrinu. Við hófum túrinn í fínu veðri en síðan voru 18-20 metrar þar til í lokin en þá fengum við gott veður á ný,“ er haft eftir Hjálmari Ólafi.

Gullver hélt á ný til veiða í dag.

Deila: