Aflarinn hættir um áramót

Deila:

Samningur Aflarans við Fiskistofu fellur úr gildi 1. janúar 2024 og ekki verður hægt að nota þeirra þjónustu við skil aflaupplýsinga frá og með þeim degi. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu. Þetta þýðir að þeir sem hafa verið að nota þjónustuna þurfa að leita til nýs þjónustuaðila.

Frekari upplýsingar um afladagbók er að finna á heimasíðu Fiskistofu, ásamt upplýsingum um þá þjónustuaðila sem hlotið hafa samþykki að uppfylltum kröfum stofnunarinnar um skil aflaupplýsinga í vefþjónustu.

Fiskistofa áréttar fyrir skipstjórnarmönnum að í millitíðinni þurfi að gæta að því að skrá aflaupplýsingar í réttri röð í viðmóti kerfis Aflarinn ehf., svo upplýsingarnar berist með réttum hætti til vefþjónustu Fiskistofu. Ábyrgð á réttum skilum aflaupplýsinga í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli hvílir á skipstjórnarmanni fiskiskips

Deila: