Unnu 261 þúsund tonn

Deila:

Fiskimjölsverksmiðjurnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði tóku samtals á móti 261.264 tonnum af hráefni á nýliðnu ári. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að verksmiðjan í Neskaupstað hafi tekið á móti 172 þúsund tonnum rúmum en á Seyðisfirði var tekið á móti tæplega 89 þúsund tonnum.

„Til verksmiðjunnar í Neskaupstað bárust 64.306 tonn af kolmunna, 53.590 tonn af loðnu, tæplega 33.000 tonn af síld og tæplega 22.000 tonn af makríl. Verksmiðjan á Seyðisfirði fékk til vinnslu 56.663 tonn af kolmunna og tæplega 32.000 tonn af loðnu,” segir í fréttinni.

Þá segir að fiskiðjuverið í Neskaupstað hafi tekið á móti 61 þúsund tonnum á árinu 2023. Móttekin loðna hafi verið 17 þúsund tonn rúm, síld liðlega 27 þúsund tonn en tæplega 17 þúsund tonn bárust af makríl.

Frystihúsið á Seyðisfirði tók á móti 2.189 tonnum af hráefni til vinnslu á árinu 2023.

 

Deila: