Fiskistofustjóri lætur af störfum

Deila:

Ögmundur Knútsson Fiskistofustjóri hefur beðist lausnar frá störfum frá og með 15. janúar 2024. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Þar eru Ögmundi þökkuð vel unnin störf og honum óskað velfarnaðar í nýju starfi. Fram kemur að Ögmundur hafi tekið að sér starf hjá Alþjóðabankanum sem „Senior Fisheries Specialist“ fyrir Vestur Afríku.

Í tilkynningunni segir einnig að Elín Björg Ragnarsdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlitssviðs og staðgengill Fiskistofustjóra muni sinna starfi Ögmundar þar til nýr forstjóri verði ráðinn. Starfið verði auglýst á næstu dögum.

 

Deila: