Enn lengt í umsagnarfresti

Deila:

Frestur til að senda inn umsagnir eða ábendingar um frumvarp Svandísar Svavarsdóttir matvælaráðherra um lagareldi hefur verið framlengdur til og með 12. janúar 2024. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Þar segir að í frumvarpinu séu lögð til ný heildarlög um sjókvíaeldi, landeldi og hafeldi. Markmið frumvarpsins sé að skapa lagareldi á Íslandi skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi. „Einnig er lögð áhersla á að lagareldi verði stjórnað út frá skilgreindum mælikvörðum sem komi í veg fyrir að greinin hafi neikvæð áhrif á umhverfi sitt, hvort sem er á vistkerfi eða villta stofna. Að auki verði dýravelferð og sjúkdómavarnir með besta hætti á heimsvísu.”

Þetta er í annað sinn sem umsagnarfresturinn er lengdur.

Frumvarpið má sjá hér á samráðsgátt.

Deila: