Ný grunnsýning Sjóminjasafnsins senn opnuð

Deila:

Ný grunnsýning Sjóminjasafnsins verður opnuð föstudaginn 8. júní 2018, en safnið hefur verið lokað um nokkurn tíma.

„Þessi nýja sýning fjallar um fiskveiðar Íslendinga, frá því árabátarnir gömlu viku fyrir útgerð stórra skipa á síðustu áratugum 19. aldar og fram yfir aldamótin 2000. Sagan er sögð frá sjónarhóli stærsta útgerðarbæjar landsins, Reykjavíkur, með gripum og textum, myndum og leikjum. Aðalpersónan í þessari sögu er auðvitað fiskurinn! Honum er fylgt eftir úr hafinu í netið, um borð í bátinn og að landi, í gegnum vinnslu – og loks á diskinn,“ segir í kynningu um hina nýju grunnsýning.

Í húsnæði safnsins stóð einu sinni fiskverkafólk í röðum, flakaði fisk og snyrti og pakkaði honum í umbúðir svo hann væri tilbúinn til neyslu. Þá var Bæjarútgerð Reykjavíkur þar til húsa. Fyrir utan gluggann vögguðu bátarnir í höfninni.

Skipin voru af öllum stærðum og gerðum en flest gegndu þau sama hlutverki: Að draga fisk úr sjó og færa hann að landi. Gildi fisks fyrir afkomu Íslendinga verður seint ofmetið. Fiskur hefur verið mikilvægur hluti af íslensku mataræði um aldir og ein verðmætasta útflutningsvara þjóðarinnar.

 

Deila: