Gat á sjókví í Dýrafirði

Deila:

Þann 31. janúar síðastliðinn fékk Fiskistofa tilkynningu frá Arctic Fish um að 30 x 10cm gat hefði fundist á sjókví númer 7 í Haukadalsbót í Dýrafirði. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu.

Þar segir að gatið hafi fundist þegar netapoki var skoðaður með neðansjávardróna. Gatið var á um tveggja metra dýpi.

Fram kemur að viðbragðsáætlun hafi verið virkjuð og net lögð við kvínna. Engir laxar hafi veiðst í netin, samkvæmt upplýsingum Arctic Fish.

„Fiskistofa telur ekki miklar líkur á því að fiskar hafi sloppið út um gatið, miðað við fyrirliggjandi upplýsingar. Fiskistofa mun ekki aðhafast frekar vegna málsins nema fram komi upplýsingar um að vart verði við eldisfiska í nærliggjandi svæðum eða veiðivötnum. Ábendingum þar að lútandi má koma til Fiskistofu á netfanginu fiskistofa@fiskistofa.is.”

Deila: