Hampiðjan á Spáni í nýtt húsnæði

Deila:

Hampiðjan TorNet, dótturfyritæki Hampiðjunnar á Spáni, flytur starfsemi sína um set í mars og færir sig á milli bygginga innan hafnarsvæðisins í Las Palmas á Gran Canaria. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hampiðjunni.

Þar segir að nýja húsið sé um 1700 fermetrar, eins og fyrra húsnæði. Það sé hins vegar mun hentugara fyrir starfsemina þar sem hún muni öll rúmast í einum sal en hafi verið í tveimur samliggjandi rýmum áður. Talsverð hagræðing felistí því að geta verið með lager og framleiðslu veiðarfæra í einu og sama húsinu. Nýja húsið er einnig betur tækjum búið og vinnuaðstaða starfsfólks batnar til muna við flutninginn. Loks sé staðsetningin mun betri.

Henning Henningsson, framkvæmdastjóri Hampiðjan TorNet segir að húsið muni með fullnægjandi hætti sinna þeim þörfum sem líklegt er að fyrirtækið hafi fyrir netaverkstæði og lager í Las Palmas næstu árin. „Aðkoma trukka og afhending veiðarfæra frá netaverkstæðinu mun einnig batna talsvert og mun þetta nýja hús á margan hátt bæta aðkomu og ásýnd fyrirtækisins.  Hampiðjan er framsækið fyrirtæki og í örum vexti og því er aldei að vita nema að rýmið verði nýtt til fjölbreyttari verkefna en eingöngu framleiðslu uppsjávarveiðarfæra næstu árin.“

Kjarnastarfsemi Hampiðjan TorNet verður áfram með óbreyttu sniði en fyrirtækið framleiðir flottroll og selur fylgihluti sem tengjast veiðarfærum. Helstu viðskiptavinir þess eru útgerðir sem stunda uppsjávarveiðar við vesturströnd Afríku, við Oman í Mið-Austurlöndum og á öðrum fjarlægum miðum. Hampidjan TorNet er einnig með starfsemi í Dakhla á Vestur-Sahara svæðinu í Marokkó þar sem rekið er vöruhús undir nafninu TorNet Maroc og þar verður engin breyting á starfsemi.

Deila: