Slök þorskveiði í haust og vetrarbyrjun

Deila:

Samkvæmt yfirliti Birkis Hrannars Hjálmarssonar, útgerðarstjóra ísfisktogara HB Granda, hefur þorskveiði togaranna verið slök í haust og það sem af er vetri. Þannig var staðan allt fram að síðustu helgi en þá fengu skipin mjög góðan þorskafla. Fara þarf tíu ár aftur í tímann, eða allt aftur til þess tíma þegar þorskkvótinn var skertur verulega, til að finna dæmi um jafn slaka þorskveiði á haustmánuðum og í vetrarbyrjun.

Vert er að hafa í huga að aflatölur fram að nýliðinni helgi voru til skoðunar og eftir að að koma í ljós hvort það skot, sem kom í þorskveiðina sl. laugardag á Vestfjarðamiðum, bendi til aukinnar veiði næstu vikurnar.

Að sögn Birkis Hrannars er þó ljóst að haustveiði á þorski hefur verið mun dræmari í ár og í fyrra en í mörg ár þar á undan. Hann segir að sl.vikur hafi verið dræmar fyrir vestan og í fleiri skipti en færri hafi skipin ekki náð þeim þorski sem þeim hafi verið ætlaður. Besta veiðin hafi verið yfir nóttina og jafnvel þá hafi komið fyrir að skipin hafi ekki náð tonni á togtímann.

,,Líklega hefur bolfiskveiðin frá 2009 til 2015 verið heilt yfir mjög góð, þ.e.a.s. í þorski, ufsa og karfa. Þá þótti gott ef t.d. Sturlaugur H. Böðvarsson AK kom með 60-65 tonn af tveggja kílóa þorski og lítið með því eftir 5 daga á Vestfjarðamiðum. Hér áður fyrr var þorskveiðin svona og e.t.v. var maður bara orðinn góðu vanur,“ segir Birkir Hrannar Hjálmarsson í samtali á heimasíðu HB Granda.

Deila: