Fyrsta „skotið“ kom á laugardaginn

Deila:

,,Haustið og það sem er er vetri hefur verið mjög slakt hvað varðar þorskveiðina og fyrsta eiginlega skotið kom ekki fyrr en sl. laugardag. Það var í Þverálnum og þar var mokveiði eða 60 tonna dagur. Þetta er langbesta veiðin sem fengist hefur frá því sl. sumar og það er ekki laust að ákveðin fortíðarþrá hafi gert vart við sig því þarna voru einir 30 togarar að veiðum og það var mokafli hjá þeim öllum.“

Þetta segir Heimir Guðbjörnsson, skipstjóri á Helgu Maríu AK, í samtali við heimasíðu HB Granda, en togarinn kom til Ísafjarðar á sunnudag með tæplega 150 tonna afla. Fiskurinn er afrakstur um fjögurra daga veiðiferðar á Vestfjarðamið en síðustu þrjár landanir togarans hafa verið á Ísafirði og hefur aflanum verið ekið suður til Reykjavíkur til vinnslu.

,,Við vorum reyndar ekki búnir að vera nema sólarhring að veiðum  þegar við fórum inn til Ísafjarðar sl. þriðjudag með tæplega 20 tonn af þorski. Það var spáð enn einum hvellinum á miðunum og því var ekki um annað að ræða en að leita hafnar. Í túrnum á undan vorum við svo með um 120 tonn sem einnig fóru í land á Ísafirði,“ segir Heimir en að hans sögn hafa ísfisktogarar HB Granda nýtt sér Ísafjörð sem löndunarhöfn upp á síðkastið.

,,Það er ekki gert sérstaklega til að draga úr siglingum með aflann heldur vegna þess að þegar þorskveiðin hefur verið jafn treg og raun ber vitni í allt haust og vetrarbyrjun þá er nauðsynlegt að hanga á þorskinum á meðan hann gefur sig til og missa helst aldrei sjónar á því hvert hann er að fara. Þetta hefur svo sem gengið upp og ofan og fyrir síðustu helgi var ástandið orðið afleitt. Við vorum e.t.v. að fá eitt og hálft tonn af þorski á tímann yfir nóttina og svo var ekkert að hafa yfir daginn. Halamiðin voru steindauð og það var helst að Þverállinn og Strandagrunnið væru að bjarga okkur,“ segir Heimir en hann upplýsir að loðna hafi ekki sést í þorskinum á Halanum í vetur fyrr en að vart varð við hana um helgina.

,,Það hefur verið einhver loðna eða æti austur á Strandagrunni í vetur en það er fyrst nú að vart verður við æti á Halanum. Fyrir bræluna sást loðnan ekki en nú er hún komin og þorskurinn með.“

Að sögn Heimis hefur önnur veiði ekki verið merkileg í vetur. Kominn sé sá tími að aðeins er hægt að eiga við gullkarfa í fáa klukkutíma á degi hverjum.

,,Karfinn gefur sig bara til í birtunni og ef ekki er dimmt yfir þá getum við vænst þess að fá karfa frá því skömmu fyrir hádegi og þar til að rökkva tekur síðdegis. Það var fín karfaveiði í allt sumar og fram eftir hausti, m.a. í Víkurálnum og í kantinum úti af Vestfjörðum, en þessi veiði hefur dalað mjög mikið,“ segir Heimir Guðbjörnsson.

Deila: