Minna á að sleppa lifandi grásleppu

Deila:

Fiskistofa minnir sjómenn á að skip sem stunda netaveiðar, aðrar en grásleppuveiðar, eigi að sleppa allri grásleppu sem er lifandi í netum þegar þau eru dregin. „Við hvetjum því áhafnir fiskiskipa til að virða ákvæði í 1. málsgrein 3. greinar reglugerðar um nýtingu afla og aukaafurða. Fiskistofa mun bregðast við ef skip landa ítrekað óeðlilegu magni af grásleppu, enda er ljóst að megnið af grásleppu er lifandi í þorskanetum sem dreginn eru með reglubundnum hætti,” segir í frétt á vef Fiskistofu.

Deila: