Arctic Sea Farm fær rekstrarleyfi

Deila:

Matvælastofnun hefur veitt Arctic Sea Farm ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi í samræmi við lög um fiskeldi. Frá þessu er greint á vef stofnunarinnar. Þar segir að tillaga að rekstrarleyfi hafi verið auglýst á vefnum þann 5. júní og var frestur til að skila inn athugasemdum til 5. júlí 2023.

Arctic Sea Farm sótti um nýtt rekstrarleyfi fyrir 8.000 tonnum af laxi og regnbogasilungi í Ísafjarðardjúpi. Fyrirtækið er fyrir með 5.300 tonna hámarkslífmassa í rekstrarleyfi (FE-1127) fyrir sjókvíeldi á regnbogasilung í Ísafjarðardjúpi. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 20. maí 2019 og mun rekstrarleyfi FE-1127 falla niður við gildistöku nýs leyfis.

Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi sem heimilar eldi í Ísafjarðardjúpi fyrir allt að 8.000 tonna hámarkslífmassa á regnbogasilungi og laxi, þar af má hámarkslífmassi af frjóum laxi að hámarki vera 5.200 tonn. Matvælaráðuneytið hefur birt burðarþolsmat og áhættumat erfðablöndunar fyrir fiskeldi á Íslandi. Burðarþolsmat Ísafjarðardjúps er metið 30.000 tonn og heimilar áhættumat erfðablöndunar 12.000 tonna hámarkslífmassa af frjóum laxi í Djúpinu. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Deila: