Fiskistofa vill ráða eftirlitsmenn

Deila:

Fiskistofa óskar eftir að ráða eftirlitsmenn í 1-2 stöðugildi á veiðieftirlitssviði. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.

Fiskistofa leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum, jákvæðum og drífandi einstaklingum sem hafa reynslu og áhuga á sjávarútvegi til starfa á starfsstöð stofnunarinnar í Hafnarfirði. Fiskistofa leggur áherslu á stafrænar- og rafrænar lausnir, greiningar og áhættumat til skilvirkara eftirlits og er starf við veiðieftirlit hjá Fiskistofu afar fjölbreytt og enginn einn dagur eins. Starf eftirlitsmanns eru almenn eftirlitsstörf á sjó, í landi og skrifstofustörf svo sem gerð eftirlitsskýrslna og rafrænt eftirlit.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Eftirlit á sjó. Það felur m.a. í sér eftirlit með hinum ýmsu skipum og bátum, þar af tvær eftirlitferðir á ári með vinnsluskipum. Eftirlit á sjó felur m.a. í sér lengdarmælingar á fiski og tillögugerð um lokanir veiðisvæða, eftirlit með aflasamsetningu, veiðarfærum, hlutfalli smáfisks í afla og brottkasti afla.

  • Eftirlit í landi. Það felur m.a. í sér eftirlit með löndun, eftirlit með vigtun og skráningu afla á hafnarvogum og hjá vigtunarleyfishöfum, eftirlit með veiðarfærum og aflasamsetningu, lengdarmælingar á afla og eftirlit með færslu afladagbóka. Eftirlit með löndunum erlendra skipa og úttektir á afurðum vinnsluskipa, eftirlit með lax- og silungsveiði, malartekju í veiðivötnum ásamt skrifstofustörfum s.s. skýrslugerð þegar vettvangsstörfum lýkur, eftirliti með löndunum og skráningum í aflaskráningarkerfi Fiskistofu ásamt öflun gagna vegna brotamála sem upp koma.

  • Rafrænt eftirlit. Greining gagna og þróun.

  • Eftirlitsflug með fjarstýrðum loftförum.

  • Önnur verkefni á starfssviði stofnunarinnar.

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi.

  • Mjög góð almenn tölvukunnátta.

  • Góð íslensku kunnátta.

  • Góð ensku kunnátta og/eða norðurlandamáli kostur.

  • Greiningarfærni og talnagleggni.

  • Haldgóð reynsla og þekking af störfum í sjávarútvegi.

  • Þekking og reynsla af sjómennsku er kostur.

  • Gott heilsufar sbr. heilsufarskröfur Fiskistofu.

  • Sjálfstæði, fagmennska og nákvæmni í vinnubrögðum.

  • Sanngirni og háttvísi.

  • Mjög góð hæfni í hópastarfi og samskiptum nauðsynleg.

  • Hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til 10. apríl 2024 og allar nánari upplýsingar er að finna á Starfatorgi.

Deila: