Afli fyrir 11 milljarða í janúar

Deila:

Verðmæti landaðs afla við fyrstu sölu í janúar 2024 var rúmlega 11 milljarðar króna en var rúmir 17 milljarðar í janúar á síðasta ári.

Á tólf mánaða tímabilinu frá febrúar 2023 til janúar 2024 var aflaverðmæti um 212 milljarðar króna sem er 1% minna en á sama tímabili ári áður. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Deila: