Farin til kolmunaveiða

Deila:

Fyrir helgi létu Síldarvinnsluskipin Barði NK, Beitir NK og Börkur NK úr höfn í Neskaupstað og héldu til kolmunnaveiða, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Þar er rætt við Hálfdan Hálfdanarson skipstjóra á Berki, sem líst vegl á veiðarnar. Haft r eftir honum að veiðar hafi verið að hefjast á gráa svæðinu syðst í færeysku lögsögunni og að íslensk skip hafi fengið þar góðan afla á fimmtudag.

„Nú er bara að vona að veður haldist gott og þá ætti að fiskast vel þarna. Við hófum veiðar á þessum slóðum sjöunda eða áttunda apríl í fyrra og það fiskaðist strax vel,” segir Hálfdan.

Fiskimjölsverksmiðjurnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði eru tilbúnar að taka á móti afla til vinnslu. Síldarvinnslan á eftir að veiða um 61.000 tonn af kolmunna þannig að það eru næg verkefni framundan.

Deila: