Góð kolmunaveiði á gráu svæði

Deila:

Síldarvinnsluskipin Barði NK, Beitir NK og Börkur NK eru öll að kolmunnaveiðum í færeysku lögsögunni. Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar.

Rætt er  við Hálfdan Hálfdanarson skipstjóra á Berk, og hann spurður hvernig gangi. „Það hefur bara gengið ágætlega. Veðrið hefur verið gott og það er töluvert að sjá af fiski. Við erum að veiða á gráa svæðinu syðst í færeysku lögsögunni. Hérna eru mörg skip, bæði íslenski og færeyski kolmunnaflotinn og svo eru rússnesk skip einhversstaðar í grendinni. Við erum búnir að taka þrjú hol og komnir með rúmlega 1.800 tonn. Það er ekki lengi dregið eða frá fimm og upp í tíu tíma. Tvo holanna gáfu um 500 tonn og eitt gaf 800 tonn. Það er ekki hægt að vera annað en sáttur við svona aflabrögð.”

Í morgun var Beitir kominn með um 1.000 tonn um borð og var að byrja að dæla. Barði var kominn með um 1.400 tonn og var að toga. Hákon EA er á landleið með um 1.600 tonn og mun landa á Seyðisfirði. Er Hákon væntanlegur þangað um hádegi á morgun, að því er fram kemur í fréttinni.

Deila: