Fjarðabyggð fékk mest úr fiskeldissjóði

Deila:

Stjórn fiskeldisjóðs hefur úthlutað 437,2 milljónum króna til sextán verkefna í sjö sveitarfélögum. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Alls bárust 29 umsóknir frá átta sveitarfélögum, samtals að fjárhæð rúmlega 1,5 milljarður króna, sem er meira en þrefalt hærri fjárhæð en var til úthlutunar.

Umsóknarfrestur var til 6. mars og lauk úthlutun 8. apríl. Eftirtalin sextán verkefni hlutu styrk að þessu sinni:

 

Bolungarvík 34.469.000
Aðkoma, aðstaða og aðgengi að hafnarsvæði 15.447.000
Neysluvatnsholur í Bolungarvík 19.022.000
 

Fjarðabyggð

 

151.840.000

Fráveita á Breiðdalsvík, seinni hluti, hreinsivirki 26.494.000
Kaup á slökkvibifreið, Fjarðabyggð 44.452.000
Leikskólinn Dalborg, Eskifirði, innanhúsfrágangur 40.447.000
Lenging Strandabryggju, Fáskrúðsfirði 40.447.000
 

Ísafjarðarbær

 

79.407.000

Fráveita á Þingeyri, hreinsivirki 51.660.000
Verknámshús við Menntaskólann á Ísafirði 27.747.000
 

Múlaþing

 

39.646.000

Þjónustumiðstöð, hafnarhús og slökkvistöð, Djúpavogi 39.646.000
 

Strandabyggð

 

25.384.000

Fráveita í Strandabyggð, uppbygging hreinsistöðva 25.384.000
 

Súðavíkurhreppur

 

17.307.000

Mengunarvarnabúnaður fyrir Súðavíkurhöfn 1.457.000
Heitir pottar og aðstaða á Langeyri 15.850.000
 

Vesturbyggð

 

89.147.000

Nýbygging leik- og grunnskóla, Bíldudal 46.454.000
Kaup og uppsetning varmadælu við sundlaugina, Patreksfirði 13.000.000
Rannsóknarrými í Verbúðinni, Patreksfirði 7.175.000
Endurnýjun skólalóðar Patreksskóla, Patreksfirði 22.518.000
 

Samtals kr. 

 

437.200.000

Deila: