Ársfundur SFS í beinni
Ársfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi stendur yfir í Hörpu í dag. Honum er streymt beint. Ólafur H. Marteinsson, formaður SFS, flytur opnunarerindið á fundinum en Bjarni Benediktsson forsætisráðherra mun flytja ávarp.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
Opnunarerindi
Ólafur Marteinsson, formaður SFS
Ávarp
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra
Aquaculture in Iceland – taxation and international competitiveness
Leo A Grünfeld, meðeigandi Menon Economics
Oddbjørn Grønvik, yfirhagfræðingur hjá Menon Economics
Orkukerfi – sóun í nafni umhverfisverndar
Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur
Hvernig geta stjórnmálin aukið verðmætasköpun?
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar
Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra
Snorri Másson stýrir umræðum
4-4-2
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS
Fundarstjóri:
Birna Einarsdóttir, stjórnarformaður Iceland Seafood International