Dældu sjó úr Gretti sterka

Deila:

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru á föstudagskvöldið kallaðar út vegna dráttarbátsins Grettis sterka sem lenti í vanda vegna bilunar, suðaustur af Vík. Fimm voru um borð í dráttarbátnum.

Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar. Áhöfn Grettis hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í kjölfar þess að báturinn tók inn á sig sjó vegna bilunar. TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, og björgunarskipið Þór, frá Vestmannaeyjum, héldu til móts við dráttarbátinn sem tók stefnuna til Eyja þegar bilunarinnar varð vart. Þá var dráttarbáturinn Lóðsinn frá Vestmannaeyjum einnig beðinn um að halda á vettvang, að því er fram kemur í fréttinni.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var komin að dráttarbátnum um klukkan 23:30 og fóru tveir sigmenn þyrlunnar um borð í dráttarbátinn með sjódælur og hófu að dæla sjó úr bátnum. Sigmennirnir urðu eftir í dráttarbátnum meðan þyrlan hélt til Vestmannaeyja til að taka eldsneyti. Skömmu síðar kom björgunarskipið Þór frá Vestmannaeyjum  á vettvang um klukkan 00:30 og flutti fleiri dælur um borð og aðstoðaði við útdælingu.

Vel gekk að sögn að dæla sjó úr Gretti sem var kominn til hafnar í Vestmannaeyjum undir morgun í fylgd Lóðsins.

Meðfylgjandi mynd er af vettvangi og er frá Landhelgisgæslunni.

Deila: