Úr kolmunamoki yfir í makrílveiðar

Deila:

Á  vef Síldarvinnslunnar er farið yfir hina ótrúlegu kolmunaveiði sem verið hefur í vetur. Þar segir fyrst að Beitir sé á landleið með 3.100 tonn úr færeysku lögsögunni. Með þeirri löndun ljúki kolmunaveiðum Síldarvinnsluskipa að sinni. „Eftir því sem best er vitað eru nú engin íslensk skip á kolmunnamiðunum en þar eru hins vegar færeysk og rússnesk skip auk grænlenska skipsins Polar Amaroq. Síldarvinnslan skilur eftir um það bil 18.000 tonn af kolmunnakvóta sínum og er stefnt að því að veiða hann í íslenskri lögsögu síðar á árin,” segir í frétt á vef Síldarvinnslunnar.

Fram kemur að menn hafi aldrei upplifað aðra eins kolmunaveiði. Gjarnan hafi fengist um 100 tonn á togtíma á Gráa svæðinu syðst í færeysku lögsögunni. Áhersla hafi verið lögð á að koma með aflann vel kældan að landi. Fyrir vikið hafi hann reynst vinnslunum úrvalshráefni.

Enn fremur segir að eftir páska hafi veiðin verið samfelld og vinnslunar látnar ganga án hlés. Beitir, Börkur og Barði hafa sinnt veiðunum auk Vilhelms Þorsteinssonar og Hákonar EA, sem hafa landað hjá Síldarvinnslunni.

Samtals hafa verksmiðjurnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði tekið á móti um 120.000 tonnum af kolmunna frá áramótum að farmi Beitis, sem er á landleið, meðtöldum. Verksmiðjan í Neskaupstað hefur tekið á móti um 68.000 tonnum og verksmiðan á Seyðisfirði um 52.000 tonnum.

„Starfsmenn fiskimjölsverksmiðjunnar í Neskaupstað bíða spenntir eftir að Beitir komi með lokafarm kolmunnaveiðitímabilsins að landi en við vinnslu á honum á að taka í notkun nýjan þurrkara í verksmiðjunni. Þurrkarinn kemur frá Vélsmiðjunni Héðni og er stærsti þurrkarinn af nýrri gerð sem Héðinn framleiðir.

Nú mun undirbúningur makrílvertíðar hefjast hjá Síldarvinnsluskipunum. Í fyrra héldu þau til makrílveiða seint í júnímánuði og ekki er ósennilegt að veiðarnar hefjist um svipað leyti í ár.”

Deila: