Virðast hafa rekist saman

Flest bendir til þess að flutningaskipið Longdawn, sem vísað hefur verið til Vestmannaeyja, hafi siglt á strandveiðibátinn sem sökk úti fyrir Garðskagavita í nótt. Fiskifréttir greina frá því að stefni flutningaskipsins sé laskað – og birta mynd því til staðfestingar.
Leiðir skipanna á marinetraffic.com renna stoðum undir þetta.
Sjá einnig: Mannbjörg úti fyrir Garðskaga
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd lágu leiðir skipanna saman í nótt. Tilkynning barst Landhelgisgæslunni klukkan 02:42.
Strandveiðisjómanninum var bjargað úr sjónum af skipverja nærstadds strandveiðibáts á þriðja tímanum. Sá sýndi mikið snærræði og náði manninum upp úr sjónum.
Maðurinn var að sögn kominn í björgunarbúning en var orðinn kaldur í sjónum. Sjúkrabíll beið hans á bryggjunni. Báturinn sem sökk, Hadda HF, var á leið frá Sandgerði út á miðin.
Litur flutningaskipsins Longdawn er samfellt grænn, sem bendir til að skipverjar hafi ekki orðið varir við áreksturinn. Ekkert hik varð á för þess.
Landhelgisgæslan beindi flutningaskipinu til hafnar í Vestmannaeyjum þar sem skýrsla verður tekin af skipstjóra skipsins vegna rannsóknarinnar.
Uppfært: Vísir greinir frá því að skipstjóri Longdawn og tveir stýrimenn hafi verið handteknir, grunaðir um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska.