„Er uggandi yfir þessari stöðu“

„Því miður bendir ekkert til annars en að veiðarnar verði stöðvaðar í júlí,“ segir Kjartan Páll Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands í viðtali í nýjasta tölublaði Ægis.
Strandveiðar hófust 2. maí en samkvæmt reglugerð sem ráðherra hefur gefið út, sem er eins og í fyrra, er gert ráð fyrir að flotinn fái að veiða 10 þúsund tonn af þorski. Það dugar flotanum sennilega ekki nema í rúma tvo mánuði af þeim fjórum sem strandveiðar eiga að standa yfir. Nýr ráðherra tók við málaflokknum eftir stólaskipti í ríkisstjórninni á dögunum.
Bjarkey Olsen, þingmaður VG, tók þá við lyklunum af matvælaráðuneytinu frá samflokkskonu sinni Svandísi Svavarsdóttur. Ekki er að heyra á formanninum að þau stólaskipti veki upp bjartsýni um að bætt verði við strandveiðipottinn.
„Ég er mjög nervus yfir þessari stöðu, eins og aðrir strandveiðimenn akkúrat núna. Í aðra röndina hlakka ég til að byrja á strandveiðum og vil gefa nýjum ráðherra tækifæri til að sanna sig og gera breytingar. Á hinn bóginn er ekkert sem bendir til neins annars en að þetta verði framkvæmt með sama hætti og undanfarin tvö ár.“