Strandveiðimenn efna til kröfufundar

Strandveiðifélag Íslands boðar til kröfufundar föstudaginn 7. júní klukkan 12.00. Viðburður þess efnis hefur verið stofnaður á Facebook. Strandveiðisjómenn mótmæltu með eftirminnilegum hætti í fyrra við Austurvöll. Nú á að endurtaka leikinn.
Safnast verður saman við Hörpu og gengið að Austurvelli. „Strandveiðifélagið hvetur vini og velunnara til að mæta og krefjast þess að umhverfisvænustu fiskveiðar við Íslands strendur fái að standa út vertíðina.”
Fram kemur að nú stefni allt í stöðvun veiðanna í júlí, þriðja árið í röð. Það sé óásættanlegt og reiðarslag fyrir strandveiðimenn og brothættar byggðir í kring um landið. „Sýnum samstöðu og látum ekki bjóða okkur slíka niðrandi framkomu þegjandi og hljóðlaust.
Trillukarlar og konur eru hvött til að klæðast sjóstökkum. Mætum sem flest í baráttuham!”