Troðfullt hjá Gullveri

Deila:

Gullver NS landaði í heimahöfn á Seyðisfirði sl. sunnudag. Á vef Síldarvinnslunnar segir að aflið hafi verið með góðan afla – raunar var skipið troðfullt. Um 60 tonn voru af ýsu en um 40 tonn af þorski.

Rært er við Þórhall Jónsson skipstjóra, fréttinni. „Við fengum mest af ýsunni á Barðinu svokallaða ofarlega í Berfjarðarálnum en þorskinn fengum við í Hvalbakshallinu. Það fékkst betri ýsa á Barðinu en annars staðar þar sem við reyndum fyrir okkur en annars virðist vera ýsa mjög víða. Í túrnum var reynt við ufsa á nokkrum stöðum en eins og svo oft áður var árangurinn lítill. Það var fínasta veður allan túrinn. Það virðist vera komið sumar hérna fyrir austan og það er afskaplega gott. Nú er komið að sjómannadagsstoppi hjá okkur og það verður ekki haldið á ný til veiða fyrr en á mánudag,“ segir Þórhallur.

Deila: