Skora á ráðherra að leyfa hvalveiðar

Deila:

Aðal­fund­ur Fé­lags skip­stjórn­ar­manna skorar á matvælaráðherra að heimila hvalveiðar. Þetta kemur fram í áskorun sem samþykkt var fyrir helgi. Þar er áhyggjum lýst af offjölgun hvala. Bent er á að hvalir éti milljónir tonna af átu og öðrum fisktegundum í hafinu á hverju ári. Fjölgun hvala er í áskoruninni kennt um að engin loðnuvertíð hafi verið síðastliðið haust og í vetur. Afleiðingar þess að hvalir séu ekki veiddir séu alvarlegar fyrir lífríkið í hafinu. Milljaðra atvinnutekjur tapist og útflutningstekjur einnig.

„Ef hval­veiðar verða ekki leyfðar, þá er aug­ljóst að nytja­stofn­ar okk­ar munu bera skaða af. Fisk­veiðar eru und­ir­stöðuat­vinnu­grein þjóðar­inn­ar.  Aðal­fund­ur Fé­lags skip­stjórn­ar­manna skor­ar á mat­vælaráðherra að heim­ila nú þegar hval­veiðar.”

Deila: