Tæplega 60 sagt upp hjá Þorbirni

Deila:

Fimmtíu og sjö starfsmönnum Þorbjörns í Grindavík hefur verið sagt upp störfum. Vísir greinir frá þessu. Af þessum 57 munu 35 hafa verið við vinnu hjá fyrirtækinu að aundanförnu. Hinn hlutinn hafi farið erlendis og ekkert unnið hjá fyrirtækinu frá því bærinn var fyrst rýmdur.

Fram kemur að uppsögnina megi rekja til jarðhræringanna og ástandsins í bænum.

„Við vorum búin að vera að byggja vinnsluna upp, laga hana til, og vorum nýbúin að ræsa nýtt frystikerfi í nóvember þegar þetta dundi yfir. Við vorum búin að reyna að halda lífinu í þessu, en við ákváðum að þetta væri komið gott í bili,“ hefur Vísir eftir Jóhanni Gunnarssyni, yfirmanni landvinnslu Þorbjarnar í Grindavík.

Deila: