Góður túr hjá Gullverinu

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði í gærmorgun að lokinni veiðiferð. Afli skipsins var 102 tonn og uppistaða hans var þorskur og ýsa. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir á heimsíðu Síldarvinnslunnar að fiskurinn sem fékkst hafi verið einstaklega fallegur.
„Við hófum veiðiferðina í Seyðisfjarðardýpinu og tókum þar þorsk. Síðan var haldið á Papagrunn og reynt við ufsa með heldur döprum árangri. Þá var farið á Skrúðsgrunninn og ýsan tekin þar. Segja má að allt hafi gengið vel að undanskildum ufsanum en eins og hefur verið að undanförnu reyndist býsna erfitt að hafa upp á honum,“ segir Þórhallur.
Stór hluti afla Gullvers fer til vinnslu í frystihúsi Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði og segir Ómar Bogason, rekstarstjóri hússins, að eins og alltaf komi einstaklega góður fiskur úr Gullver. Togarinn heldur á ný til veiða síðdegis í dag.

Deila: