Mótmæla hvalveiðum: „Takið með potta og pönnur”

Deila:

Mót­mæl­in verða hald­in á Aust­ur­velli kl. 19.30 í dag á meðan á eld­hús­dagsum­ræður standa yfir á þingi.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, matvælaráðherra hefur gefið út leyfi til Hvals hf. til að drepa 128 langreyðar í sumar. Samtökin Hvalavinir hafa af þessari ástæðu boðað til mótmæla á Austurvelli klukkan 19:30 í kvöld, þegar eldhúsdagsumræður standa yfir á Alþingi.
„Við fordæmum tilgangslausar og ómannúðlegar veiðar á hvölum og krefjumst þess að Alþingi hlusti á vilja þjóðarinnar sem vill stöðva drápin. Við gefumst ekki upp fyrr en búið er að banna hvalveiðar með öllu,” segir í yfirlýsingu á Facebook-síðu samtakanna.
Þar segir enn fremur: „Ætla þingmenn að skunda í sumarfrí og loka augunum fyrir tilgangslausri þjáningu og dauða 128 langreyða?
„”, látum í okkur heyra!”
Deila: