Bannað að veiða silung á Pollinum

Deila:

Almenningi er óheimilt að veiða silung á Pollinum við Akureyri. Pollurinn er á ósasvæði Eyjafjarðarár. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu.

Fréttin í heild hljóðar svo:

„Veiði laxfiska á Pollinum við Akureyri er því samkvæmt ósamati innan umdæmis Veiðifélags Eyjafjarðarár. Veiði er því háð leyfi veiðifélagsins og þeim reglum sem veiðifélagið setur um veiðina í nýtingaráætlun.

Allar upplýsingar um veiðileyfi fyrir laxfiska í Pollinum frá landi má nálgast hjá Veiðifélagi Eyjafjarðarár.

Athugið að:

  • Reglur Veiðifélags Eyjafjarðarár heimila ekki veiði á sjóbleikju úr báti á Pollinum.

  • Veiðifélag Eyjafjarðarár gerir þá kröfur til veiðimanna í þeirra umdæmi að sleppa skuli allri bleikju sem veiðist.

Þessar aðgerðir eru taldar nauðsynlegar með tilliti til stöðu bleikjustofns árinnar og í samræmi við tilmæli í umsögn Hafrannsóknastofnunar vegna fram lagðrar nýtingaráætlunar Veiðifélags Eyjafjarðarár fyrir sjóbleikju.”

Deila: