Spenntir fyrir makrílvertíðinni

Deila:

Uppsjávarveiðiskip Síldarvinnslunnar eru í þann mun að hefja makrílveiðar. Fram kemur á vef Síldarvinnslunnar að Börkur NK hafi verið í reglubundnu eftirliti í Skagen í Danmörku og að hann sé að leita makríls þaðan. Beitir NK og Barði NK eru líka að hefja veiðar.

Rætt er við Tómas Kárason, skipstjóra á Beiti í fréttinni. Hann segir að menn séu bjartsýnir fyrir vertíðinni. „Ég er það allavega. Í fyrra var byrjað að leita um svipað leyti. Þá var fyrst leitað í Smugunni en síðan hófst veiði í Rósagarðinum. Mig minnir að fyrsta löndunin hafi átt sér stað 1. júlí. Ég held að Börkur eigi að fara í Smuguna og hefja leit þar en við munum væntanlega fara suður í Rósagarðinn. Ef lítið finnst í Rósagarðinum munum við líklega fara austur að miðlínunni og leita norður með henni. Síðan mun Barði hefja leit og einnig Vilhelm Þorsteinsson EA sem kemur frá Danmörku eins og Börkur. Margrét EA mun síðan einnig bætast við. Við á Síldarvinnsluskipunum verðum væntanlega í veiðisamstarfi með Samherjaskipunum Vilhelm og Margréti rétt eins og verið hefur frá 2020. Þetta veiðisamstarf hefur gengið afskaplega vel og er skynsamlegt í alla staði. Einkum er það skynsamlegt þegar veiði er ekki mikil og langt að sækja. Ég er viss um að áhafnir skipanna séu spenntar að hefja nýja vertíð og vonandi gengur vel að finna hvar makríllinn heldur sig,” er haft eftir Tómasi.

Í fréttinni er einnig rætt við Geir Sigurpál Hlöðversson, rekstrarstjóra fiskiðjuvers fyrirtækisins. Allt sé klárt til að taka á móti makríl. „Það er tilhlökkun að hefja makrílvinnsluna. Starfsfólk sem kemur að hefur verið að tínast á staðinn og það eiga allir að vera komnir í byrjun næstu viku. Það verður unnið á þremur vöktum og eru 25 manns á hverri vakt þannig að framleiðslustarfsmennirnir eru 75 að tölu en allt í allt starfa um 100 manns í fiskiðjuverinu þegar framleitt er á fullu. Það verður gott að fá fisk í húsið en síldarvertíð lauk hjá okkur í lok nóvembermánaðar en síðan fengum við tvo loðnufarma af norskum bátum í febrúar og þá voru fryst um 1.650 tonn. Okkur finnst kominn tími til að hefja aftur framleiðslu af krafti. Þetta verður spennandi,” er haft eftir honum.

Deila: