Gullver landaði 80 tonnum af karfa og ýsu

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði í liðinni viku og landaði þar. Aflinn var 80 tonn og var uppistaða hans karfi og ýsa.
Á vef Síldarvinnslunnar rætt við skipstjórann, Hjálmar Ólaf Bjarnason. Eftir honum er haft að túrinn hafi tekið fimm daga en þeir hafi verið að veiðum í þrjá.
„Við byrjuðum á tólf tíma siglingu á Melsekk þar sem reynt var við karfa. Aflinn var ekki nægilega mikill þannig að við færðum okkur á bleiðu sem ber nafnið Urð og grjót. Þaðan var síðan haldið á Litla banka og loks á Pínulitla banka þar sem karfaveiðin gekk mun betur. Þegar karfaskammtinum var náð var siglt í sólarhring. Prufað var á Mýragrunni en síðan haldið á Papagrunn þar sem fékkst ýsa, dálítið þorskblönduð. Segja má að veðrið í túrnum hafi verið hið þokkalegasta og í lokin var það alveg lygilega gott. Nú er helgarfrí framundan hjá áhöfninni og það verður ekki haldið til veiða á ný fyrr en á mánudag,” er haft eftir honum.