Árni Friðriksson leitar að makríl

Deila:

Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar Árni Friðriksson fór úr Hafnarfjarðarhöfn 1. júlí til þátttöku í árlegum alþjóðlegum uppsjávarleiðangri. Frá þessu greinir á vef Hafró. Þar segir að eitt af meginmarkmiðum leiðangursins sé að meta magn og útbreiðslu makríls, kolmunna og norsk-íslenskrar síldar í norðaustur Atlantshafi að sumarlagi.

„Í leiðangrinum verður einnig aflað gagna sem nýtast við vöktun og fjölbreyttar rannsóknir á ýmsum þáttum vistkerfisins þ.m.t. frumframleiðni, ástandi sjávar, mælingar á átumagni og rannsóknir á miðsjávarfiskum og -hryggleysingjum. Í ár verður einnig umfangsmikil hvalatalning í leiðangrinum sem er hluti af svokallaðri NASS talningu (North Atlantic Sighting Survey) og hófst í karfaleiðangri á Árna Friðrikssýni í júní síðastliðnum.”

Fram kemur að þetta sé fimmtánda árið í röð sem Hafró taki þátt í þessu verkefni, ásamt skipum frá Noregi, Færeyjum og Dönmörku. „Yfirferðasvæði Árna er fyrir norðan, austan, sunnan og vestan landið ásamt svæði í grænlenskri landhelgi fyrir norðan Ísland (Mynd 1). Líkt og áður er hægt að fylgjast með staðsetningu og feril Árna á slóðinni: https://skip.hafro.is/.”

Leiðangurinn á Árna stendur í 34 dag og verða sigldar tæplega 5500 sjómílur eða um 9400 km og 55 yfirborðstogstöðvar verða teknar á fyrirfram ákveðnum stöðum. Um borð eru 15 vísindamenn og 17 manna áhöfn.

Deila: